Prófa rugl…

Það er orðið sóðalega stutt í próf, bara vika þar til fyrsta prófið hefst og enginn tími til að læra af viti, hrikalegt að lenda í svona sérstaklega því núna yfir helgina var náttúrulega stór skil bæði í tölfræði og aðgerðagreiningu. Þrátt fyrir að mikil vinna lægi fyrir um helgina var það ekki látið aftra manni frá því að skemmta sér rækilega.

Á föstudeginum var að sjálfsögðu kosningavaka Stúdentafélags HR og aðildafélaga í Ásbyrgi á Broadway. Áður en farið var á vökuna var fyrirpartý hjá Ella þar sem var múgur og margmenni. Ég drakk bara tvö glös af bjór hjá Ella en það voru reyndar 1,5 lítra glös þannig að það tók heldur betur á, 42 og svo 43 sekúndur með glösin. Andri greyið tók eitthvað illa á sig í drykkjunni og var farinn heim um átta leitið…. og þetta er maðurinn sem leggur það í vana sinn að sötra Vodka straight. Eftir smá chill hjá Ella var haldið á Ásbyrgi þar sem niðurstöður kosningana voru kynntar. Ég var kosinn sem formaður Pragma og lýst bara vel á nýju stjórnina og hlakka til að starfa með þeim næsta árið. Eftir þetta var að sjálfsögðu djamm fram eftir nóttu.

Á laugardagskvöldið var svo kíkt á “So you think you can drink” keppnina á Pravda. Eftir mikla útreið í fjölmiðlum var keppninni víst breytt í hálfgert grín. Fyrsta umferð var þannig að tveir tóku bjór og skot og einn tók zero-2-hero glas og það var tímataka. Eftir það var svo úrslitakeppni milli tveggja efstu liðana þar sem hver maður tók einn bjór og þetta var þannig að fyrsti byrjaði og næsti mátti ekki byrja fyrr en sá sem var á undan var búinn. Ég tók þátt með Héðni og Óla og við unnum að sjálfsögðu. Fengum flottan bikar og læti. Eftir keppnina héldum við svo uppí mosó til Óla að chilla aðeins enda var keppnin mjög snemma. Heima hjá Óla var chillað og hlustað á tónlist og sötrað bjór í smá tíma og svo var haldið niður í bæ að djamma fram eftir nóttu.

Núna er það hinsvegar bara harkan sex og lært eins og múkkur næsta mánuðinn!


Comments are closed

2 responses so far, want to say something?

  1. Andri says:

    Congrads :)

    http://andrisig.wordpress.com/2007/03/26/so-you-think-you-can-drink/

  2. Óli says:

    Þetta er góður titill…..leiðindi samt að þetta var minkað niður í ekki neitt. Ég var virkilega orðinn spenntur að fá að spreyta mig!

Comments are closed.


// Random images:


IMG_3626.jpg
IMG_7165.jpg
IMG_8210.jpg
_1127191439.jpg
IMG_5960.jpg
CIMG0968.jpg
IMG_0620.jpg
frankProdsonPreview39.jpg
viso_skyrr45.jpg
IMG_3607.jpg
mexico_hansi188.jpg
125.jpg
CIMG0921.jpg

// Latest images:


IMG_0523.jpg
IMG_0493.jpg
IMG_0503.jpg
IMG_0492.jpg
IMG_0504.jpg
IMG_0509.jpg
IMG_0502.jpg
IMG_0499.jpg
IMG_0513.jpg
IMG_0517.jpg
IMG_0519.jpg
IMG_0522.jpg
P1010115.jpg

More images...